Persónuvernd – hvað Perks.is geymir og hvers vegna | Perks.is
BETA Perks.is er í þróun. Láttu okkur vita ef þú finnur villu eða úrelt tilboð.
perks.isBETA

Persónuvernd

Perks.is safnar eins litlum upplýsingum og hægt er. Hér segjum við hvað er geymt, hvar, hvers vegna og hvernig þú getur látið eyða því.

Síðast uppfært 15. október 2026

Hver ber ábyrgð

Kjartan Örn Sigurðsson rekur Perks.is og ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á vefnum. Netfang: hallo@perks.is.

Það sem er aðeins geymt í tækinu þínu

Sumt af því sem þú velur á vefnum er vistað í vafranum þínum (localStorage) svo það haldist næst þegar þú kemur. Það fer aldrei til okkar og þú getur eytt því hvenær sem er með því að hreinsa gögn vefsins í vafranum.

Þegar þú notar „Nálægt mér“ biður vafrinn um leyfi til að nota staðsetningu tækisins. Fjarlægðin er reiknuð í tækinu þínu og staðsetningin er hvorki send til okkar né vistuð.

Póstlistinn

Ef þú skráir þig á póstlistann vistum við netfangið þitt, hvenær þú skráðir þig, tungumál vefsins og hvaðan þú komst á vefinn (t.d. Instagram eða Google). Við notum netfangið eingöngu til að senda þér tilboðin sem þú skráðir þig fyrir.

Netfangið er geymt í Google Sheets á Google-reikningi Perks.is. Við seljum það aldrei og deilum því ekki með neinum öðrum.

Þú getur afskráð þig hvenær sem er með því að senda okkur línu á hallo@perks.is. Þá eyðum við netfanginu af listanum.

Ábendingar

Þegar þú sendir ábendingu vistum við textann, tegund ábendingar, tilboðið sem hún á við, slóð síðunnar og netfang ef þú gafst það upp. Netfangið notum við aðeins til að svara þér.

Ábendingar eru geymdar í Google Sheets á Google-reikningi Perks.is og þeim er eytt þegar búið er að vinna úr þeim.

Vafrakökur og mælingar

Perks.is notar engar auglýsingakökur og engar mælingar sem rekja þig á milli vefja. Auglýsingar á vefnum eru myndir með tengli og safna engum upplýsingum um þig.

Þjónustur sem vefurinn notar

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar og láta eyða þeim. Sendu okkur línu á hallo@perks.is og við svörum eins fljótt og hægt er, og alltaf innan mánaðar.

Ef þú ert ósátt(ur) við hvernig við förum með upplýsingarnar getur þú kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Senda fyrirspurn hallo@perks.is

Sástu villu á síðunni eða lentirðu í slysi?Rangt verð, úrelt tilboð, bilaður tengill eða eitthvað sem virkar ekki? Láttu okkur vita.